Skólastjórar allra tónlistarskóla á Suðurnesjum hafa sent frá sér áskorun til bæjarstjórna:
Til: Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar, Bæjarstjórn Reykjanesbæjar, Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar, Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Garðs
Áskorun vegna verkfalls Félags tónlistarskólakennara, FT
Verkfall Félags tónlistarskólakennara, sem er aðildarfélag innan Kennarasambands Íslands, hefur nú staðið í rúmar 3 vikur, en það hófst eftir að samningaviðræður höfðu staðið yfir í meira en 10 mánuði. Þegar þetta er skrifað, er lausn ekki í sjónmáli.
Við undirritaðir, skólastjórar tónlistarskólanna á Suðurnesjum, höfum verulegar áhyggjur af því hvernig skólastarfi tónlistarskólanna reiðir af og höfum m.a. miklar áhyggjur af hugsanlegu brottfalli nemenda. Einnig er framvindu náms þeirra nemenda sem lengra eru komnir í námi sínu, stefnt í mikla hættu dragist verkfallið enn frekar á langinn.
Við skorum þess vegna á ykkur, ágætu bæjarstjórnir, að þið takið höndum saman og beitið ykkur í þessu máli eins og ykkur er frekast unnt, með það að markmiði að verkfallið leysist sem allra fyrst, öllum til heilla.
Haraldur Á. Haraldsson skólastjóri Tónlistarskóla Reykjanesbæjar
Eyþór I. Kolbeins skólastjóri Tónlistarskólans í Garði
Halldór Lárusson skólastjóri Tónlistarskóla Sandgerðis
Inga Þórðardóttir skólastjóri Tónlistarskólans í Grindavík