Rodney Alexander frumsýndur í kvöld gegn Njarđvík

  • Körfubolti
  • 13. nóvember 2014

Grindvíkingar taka á móti Njarðvíkingum í kvöld í Dominosdeild karla. Gengi okkar manna hefur verið upp og ofan fram af tímabili, margir leikmenn meiddir og tveir erlendir leikmenn hafa komið og farið. Nú er sá þriðji mættur til leiks, Rodney Alexander, og mun hann spila sinn fyrsta leik í kvöld.

Rodney lék með ÍR-ingum vorið 2012 og spilaði einmitt sinn fyrsta leik gegn Njarðvíkingum þar sem hann lét 42 stigum rigna. Við gerum ekki ráð fyrir neinu minna í kvöld. Grindvíkingar mæta vængstífðir til leiks í kvöld, þar sem Jóhann Árni Ólafsson og Þorleifur Ólafsson eru báðir meiddir. Þá er Magnús Gunnarsson í banni í kvöld og í næsta leik eftir fullorðinsbrot á Brynjari Birni gegn KR í síðasta leik.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!