Um helgina var leikið í B-deild kvenna í fyrsta sinn á vegum KKÍ og er Grindavík B með í þeirri keppni en það er skemmst frá því að segja að þær eru ósigraðar eftir helgina eftir sigra á Hetti og Snæfelli. Liðið skipa þekktar eldri kempur úr grindvískri körfu ásamt blöndu af yngri leikmönnum.
Þjálfari liðsins er Bryndís Gunnlaugsdóttir, en hún skrifaði þennan pistil á karfan.is um deildina:
,,Á laugardaginn var í fyrsta sinn spilað í B-deild kvenna en KKÍ auglýsti slíka deild nú í sumar í fyrsta sinn. Fimm lið eru skráð til leiks og var gaman að sjá að Höttur er mættur til keppni með meistaraflokk kvenna en það er í fyrsta sinn sem Höttur sendir meistaraflokk kvenna til keppni í mót á vegum KKÍ svo undirrituð viti til. Það er alltaf gaman að fá fleiri lið til keppni í körfuknattleik kvenna og vonandi mun þetta mót ýta undir að körfuknattleikskonur endist lengur í íþróttinni og allir finni sér deild við hæfi.
Fyrirkomulagið er fimm liða deild með einni umferð sem gerir fjóra leiki í heild sinni á mótinu á lið. Á laugardaginn spiluðu því öll lið tvo leiki og síðari hluti mótsins mun fara fram 14. mars. Tvö efstu liðin spila síðan til úrslita hinn 18. apríl í Kennaraháskólanum.
Fjöldinn allur af konum voru mættar til keppni í Smáranum á laugardaginn og mátti sjá þar kunnugleg andlit eins og Margréti Sturlaugsdóttur hjá Keflavík, Sirrý Jónsdóttur hjá Grindavík og Gunnhildi Theodórsdóttir hjá Breiðablik. Þótt leikirnir hafi stundum einkennst af smá ryði mátti oft og tíðum sjá ansi skemmtileg tilþrif og ljóst að þarna eru margir leikmenn sem þekkja leikinn enn vel þó eitthvað sé síðan þær kepptu í móti á vegum KKÍ.
Úrslit helgarinnar voru eftirfarandi:
Breiðablik B - Keflavík B, 37-47
Snæfell B - Grindavík B, 31-49
Keflavík B - Höttur, 56-34
Breiðablik B - Snæfell B, 31-29
Grindavík B - Höttur, 78-26
Grindavík B og Keflavík B sitja því á toppi deildarinnar eftir fyrstu leikhelgina með tvo sigra hvor. Það verður því hart barist þegar næstu leikir fara fram í deildinni og í ljós kemur hvaða tvö lið komast í úrslitaleikinn."