Vaxtasamningur Suđurnesja 2014

  • Fréttir
  • 10. nóvember 2014

Auglýst er eftir styrkumsóknum til Vaxtarsamnings Suðurnesjabá grundvelli samnings um framlög til byggðaþróunar á Suðurnesjum árið 2014. Verkefnastjóri Vaxtasamningsins verður til viðtals á bæjarskrifstofu Grindavíkur þriðjudaginn 11. nóvember milli 13:00-14:00.

Styrkhæf verkefni eru þróunar- og nýsköpunarverkefni sem markvisst stefna að markaðssetningu nýrrar eða endurbættrar vöru eða þjónustu. Skilyrði úthlutunar er að viðkomandi verkefni feli í sér samstarf þriggja eða fleiri fyrirtækja og falli að markmiðum samningsins sem og verklagsreglum um úthlutun.

Styrkir geta verið allt að 50% af styrkhæfum kostnaði einstakra verkefna, gegn mótframlagi þátttakenda. Skilgreining á styrkhæfum kostnaði, umsóknareyðublöð og aðrar upplýsingar er að finna á vefsíðu vaxtarsamningsins: vaxtarsamningur.sss.is

Umsóknarfrestur - Mánudaginn 1. desember 2014, kl. 16:00.

Umsóknum skal skila á netfangið vaxtarsamningur@heklan.is. Nánari upplýsingar veitir Björk Guðjónsdóttir verkefnastjóri - bjork@heklan.is - sími 420 3288.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!