Nýjasta sprotafyrirtækið í Grindavík smíðar og framleiðir líkkistur! Smiðirnir Sveinn Arnar Reynisson og Stefán H. Matthíasson, sem hafa rekið byggingaverktakafyrirtækið Norðanmenn undanfarin ár, ákváðu í haust að söðla um í kjölfar þess að verkefnum fækkaði þegar kreppan skall á. Þeir færðu sig um set til Grindavíkur og hófu að hanna og smíða vandaðar en ódýrar líkkistur.
,,Við ákváðum að leggja þann pening sem við gátum nurlað út úr góðærinu í þessa nýju viðskiptahugmynd. Okkur datt þetta í hug þegar við heyrðum kreppufréttir í hádeginu og ákváðum að kíla á þetta hér í Grindavík. Við erum að norðan, búum á höfuðborgarsvæðinu en vinnum í Grindavík," segir Sveinn Arnar.
Stefán segir að árlega séu seldar um 2300 líkkistur á Ísland og stærsti hlutinn innfluttur. Markmið Norðanmanna sé að ná góðri markaðshlutdeild enda vel samkeppnishæfir, þeir bjóða upp á kistur á mun lægra verði en þær innfluttu. Þá hafa þeir verið í þreifingum við Vestur-Íslending í Kanada um að selja líkkistur þangað en þar er mun stærri markaður en hér á landi. Þær viðræður eru hins vegar á byrjunarreit.
Sveinn Arnar og Stefán hafa verið að koma sér fyrir með smíðaverkstæði sitt í Vörðusundi en þeir eru einnig með nokkur verkefni á höfuðborgarsvæðinu í innréttingum. Þeir segjast hafa fengið góðar móttökur í Grindavík og vonast til þess að fyrirtækið eigi eftir að vaxa og dafna svo þeir geti bætt við starfsfólki. Þeir hafa þegar fengið starfskraft í Grindavík til þess að sauma inn í líkkisturnar en það er Jónína Berglind Ívarsdóttir.