Grindavíkurbær óskar eftir að ráða starfsmann á Bókasafn Grindavíkur í 100% stöðu. Starfið heyrir undir forstöðumann bókasafns. Starfið felst m.a. í afgreiðslu, frágangi safngagna, innheimtu á bóka- og gagnakosti, umsjón með barnastarfi og safnkennslu nemenda. Viðkomandi kemur að innsetningu á heimasíðu og samfélagsmiðla safnsins og aðstoðar við skráningu og skönnun mynda á vef Ljósmyndasafns Grindavíkurbæjar ásamt öðrum tilfallandi störfum. Starfsmaður mun einnig taka þátt í kynningar- og fræðslumálum bókasafns í samstarfi við forstöðumann. Viðkomandi er jafnframt staðgengill forstöðumanns.
Menntun, reynsla og hæfniskröfur:
• Háskólapróf sem nýtist í starfi, svo sem bókasafns- og upplýsingafræði og/eða kennaramenntun
• Starfsreynsla á bókasafni er kostur
• Sjálfstæði í vinnubrögðum
• Frumkvæði og skipulagshæfni
• Góð tölvukunnátta
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Góð kunnátta í íslensku í ræðu og riti
• Hæfni til að miðla upplýsingum í töluðu og rituðu máli
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Margrét R. Gísladóttir forstöðumaður bókasafns í síma 420-1141 eða í tölvupósti bokasafn@grindavik.is.
Umsóknum með upplýsingum um menntun og starfsferil skal skilað rafrænt á netfangið bokasafn@grindavik.is. Umsóknarfrestur er til 20. nóvember.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf 2. janúar 2014.