Þrátt fyrir brunagadd í Norðaustanáttinni í gær var verið að malbika af fullum krafti við Ægisgötu, fyrir framan húsnæði Íslandsbleikju þar sem gamla Hóp var til húsa. Gamla götótta malbikinu var rutt í burtu með vinnuvélum og nýtt malbik lagt í staðinn en þetta þótti hagkvæmara en að leggja nýtt malbik beint yfir það gamla. Malbikunarframkvæmdum við Ægisgötuna verður svo fram haldið í vor.