Haustfundur fór fram í morgun hjá 3.bekk í Hópsskóla.
Á fundinum fóru umsjónakennarar yfir mikilvægi þess að mæta á réttum tíma í skólann ásamt því að kynna heimasíðuna. Ragnhildur frá skólaskrifstofunni kom og fór yfir hversu mikilvægt er að foreldrar séu virkir í skólastarfi barnanna sinna og að jákvæðni fleyti okkur langt. Hún benti einnig á það hversu gott það er að kanna hvernig börnum okkar líður í skólanum og hvernig spurninga ætti að spyrja í sambandi við skóladaginn og skólastarfið.
Eftir erindi Ragnhildar gerðu nemendur þarfagreiningu ásamt foreldrum en hún er partur af uppbyggingarstefnunni.
Halldóra og Magnea þakka foreldrum kærlega fyrir komuna.