Kvennadeild Brimfaxa

  • Fréttir
  • 23. október 2014

Hið öfluga hestamannafélag okkar Grindvíkinga, Brimfaxi, stofnaði á haustdögum 2013 kvennadeild sem hefur heldur betur ekki setið með hendur í skauti sitt fyrsta starfsár. Brimfaxi er alltaf að leita að góðum konum til að starfa með deildinni og þau sendu okkur smá skeyti með upplýsingum og fréttum af henni:

,,Kvennadeild Brimfaxa var stofnað á aðalfundi Brimfaxa 28. nóvember 2013. Markmið deildarinnar er að efla samstöðu og samvinnu kvenna innar Brimfaxa einkum með því að standa fyrir fræðslu, skemmtanahaldi og fjáröflun fyrir félagið okkar.

Það helsta sem við tókum að okkur á þessu fyrsta ári okkar var að sjá um kaffiveitingar á dráttarvélasýningu hjá Hemma staðsett í Geoplank. Einnig sáum við um kaffisölu á Kattarsýningu í Brimfaxahöllinni, þrátt fyrir að ekki er allt tilbúið þar. Farið var í skemmtilega kvennareið þar sem konur skemmtu sér vel saman á gæðingum sínum.

Stjórn Kvennadeildar Brimfaxa býður þig velkomna til starfa með okkur í nýstofnaðri kvennadeild félagsins. Við tökum fram að ekki er nauðsynlegt að fara á hestbak til að vera í hestamennsku, aðeins að vera með og taka þátt í félagsstarfinu okkar.

Á meðfylgjandi mynd má sjá hluta stjórnar þær Guðveigu, Sigríði og Kristólínu færa formanni Brimfaxa Hilmari gjöf frá kvennadeilinni sem mun koma sér vel í reiðhöllinni kaffivél, kaffikönnu og rafmagnssúpupott.

Fyrsta stjórn félagsins er skipuð eftirfarandi konum.
Formaður: Guðveig Sigurlaug Ólafsdóttir
Ritari: Guðmunda Kristjánsdóttir
Gjaldkeri: Kristólína Þorláksdóttir
Meðstjórnandi: Jónína Berglind Ívarsdóttir
Meðstjórnandi: Kolbrún Jóhannsdóttir
Meðstjórnandi: Sigríður Helga Guðmundsdóttir

Fyrir hönd kvennadeildar Brimfaxa
Guðveig Sigurlaug Ólafsdóttir, formaður."

--
Heimasíða Brimfaxa

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál

Fréttir / 27. mars 2024

Loftgćđi og mengun