Rusl hreinsađ úr Bjarnagjá

  • Fréttir
  • 22. október 2014

Undanfarin ár hefur verið nokkuð vinsælt hjá íslenskum köfurum að kafa í Bjarnagjá sem er staðsett hér rétt vestan við bæinn. Eittvað hefur þó borið á því að kafarar hafi kvartað yfir rusli í gjánni og því tóku nokkrir kafarar frá dive.is til sinna ráða og buðust til að hreinsa til í gjánni endurgjaldslaust.

Sigmar Árnason, byggingarfulltrúi bæjarsins, tók þessu tilboði fegins hendi og hrinti af stað samvinnuverkefni nokkurra aðila hér í bæ. Jón og Margeir buðu fram aðstoð sína og tæki til að hjálpa til við hreinsunina. HP gámar sköffuðu gám og starfsmenn þjónustumiðstöðvar lögðu einnig hönd á plóg. Það er skemmst frá því að segja að uppúr gjánni komu rúm tvö tonn af rusli, þar á meðal hreindýrahorn og grind úr Toyota bifreið.

Fleiri myndir má sjá á Facebook síðu Grindavíkurbæjar


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir