Opið svið á Bryggjunni í kvöld, í þrettánda sinn og í síðasta sinn á þessu ári:
Föstudagskvöldið 17. október verður enn og aftur opið svið á Bryggjan Kaffihús í Grindavík frá kl. 21:00 til kl. 00:00.
Tónlistarmennirnir Halldór Lárusson trommuleikari, Pálmi Sigurhjartarson píanóleikari & Þorgils Björgvinsson alltmögulegtleikari munu leika á opnu sviði á Bryggjunni og gefst gestum og gangandi tækifæri á að stíga á svið með þeim félögum og taka lagið. Nú, svo má einnig segja sögur, fara með ljóð eða taka í hljóðfæri eða hvað sem er.
Ókeypis er inn og eru allir hjartanlega velkomnir á flottasta kaffihús landsins.