Í kvöld föstudaginn 17. október heldur nemendaráð skólans og Þrumunar hið árlega sundlaugarpartý. Eins og orðið gefur til kynna verður partý í sundlauginni. Hátalarar eru settir upp á bakkanum og tónlist spiluð, síðan leigir nemendaráðið uppblásna rennibraut til að gera kvöldið skemmtilegra. Sundlaugarpartýið er frá kl. 20:00-22:30.
Þetta er mjög vinsæll viðburður hjá unglingunum okkar og í ár hafa þau boðið félagsmiðstöðinni Fjörheimum í heimsókn.
Viktor Guðberg nemandi í 9.bekk bjó til myndbandsauglýsingu fyrir kvöldið og er það mjög skemmtilegt, sjón er sögu ríkari (sjá hér að neðan).
Við hvetjum öll ungmenni í 8.-10. bekk að fjölmenna í kvöld og eiga skemmtilegt kvöld saman.