Landsćfing Rauđa krossins - Eldađ fyrir Ísland

  • Fréttir
  • 15. október 2014

Rauði krossinn á Íslandi stendur fyrir landsæfingu sunnudaginn 19. október og býður þjóðinni jafnframt í mat. Alls verða 48 fjöldahjálparstöðvar opnaðar um allt land þar sem sjálfboðaliðar Rauða krossins standa vaktina, rétt eins og um alvöru neyðarástand væri að ræða. Stöðin hér í Grindavík er í Hópsskóla.

Á síðustu vikum höfum við sem búum á þessari eyju í Norður-Atlantshafi verið rækilega minnt á kraft óútreiknanlegra náttúruafla. Hættan er ætíð til staðar fyrir alla sem hér eru staddir, þar sem neyð gæti orðið raunin á örskammri stundu. Skapist alvöru neyð er mikilvægt fyrir alla landsmenn, og gesti okkar einnig, að vita hvert á að sækja hjálp og hvar er hægt að komast í öruggt skjól.

Klúbbur matreiðslumeistara leggur Rauða krossinum lið á landsæfingunni með því að reiða fram þjóðarréttinn, íslenska kjötsúpu.

Rauði krossinn á Íslandi vonast til að sjá sem flesta á landsæfingunni. Það er hagur okkar allra.
Þær fjöldahjálpastöðvar sem verða opnar á Suðurnesjum eru Sandgerðisskóli, Hópsskóli Grindavík og Holtaskóli Reykjanesbæ stöðvarnar verða opnar frá kl. 11-15.

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir