Síðastliðinn laugardag kom nýjasti báturinn í flota Grindavíkur til heimahafnar, þegar Óli á Stað GK-99, sigldi inn í höfnina. Töluvert fjölmenni var við höfnina til fagna komu hans þrátt fyrir kaldan norðan garra. Séra Elínborg Gísladóttir blessaði Óla og síðan var boðið uppá heilgrillað lamb í boði Stakkavíkur, eiganda og útgerðarfélags bátsins.
Óli á Stað er 30 brúttótonn og 15 metrar að lengd. Báturinn er útbúinn til línuveiða og er búinn línubeitingarvél. Óli á Stað er annar af tveimur samskonar bátum sem Seigur smíðar fyrir Stakkavík en sá seinni er nú í smíðum. Í bátnum eru fjórir tveggja manna klefar, borðsalur og setustofa, ásamt fullkomnu og góðu eldhúsi. Það er mikið lagt upp úr góðri aðstöðu fyrir áhöfnina. Báturinn er með beitningarvél frá Mustad og vel tækjum búinn og mikið pláss á dekki. Lestin er stór, tekur 48 kör eða um 24 tonn. Bátar af þessari stærð með öllum búnaði, beitningarvél og öllum tækjum í brú kosta í kringum 200 milljónir króna.
Myndirnar sem fylgja þessari frétt tók Hilmar Bragi, ljósmyndari Víkurfrétta en textinn er einnig að hluta unninn uppúr frétt kvótans.is