Áhugahópur um endurreisn Félagsheimilisins Festis fundaði með bæjarstjóra og sendi erindi til bæjarins fyrir skömmu. Bæjarráð þakkaði sýndan áhuga á málefnum Festis og framtíð þess húsnæðis og ákvað að fela tæknideild að meta ástand hússins. Jafnframt hefur bæjarráð uppi hugmyndir um að efna til samkeppni um miðbæ Grindavíkur og bæjarstjóra falið að senda JB eignarhaldsfélagi ehf bréf. að því er fram kemur í fundargerð bæjarráðs.
Eiríkur Tómasson útgerðarmaður er einn af þeim sem er í áhugahópnum um endurreisn Festis. En hvers vegna þessi áhugi um Festi?
?Eftir að ég flutti úr Krosshúsum og uppí blokkina við íþróttavöllinn, þá hef
ég farið á hverjum degi framhjá Festi, þegar ég fer í vinnuna, út að ganga, eða
í búðina. Það er ömurlegt að sjá þetta hús grotna niður, sem hefur verið samanstaður
okkar Grindvíkinga á stundum gleði og sorgar.
Félög okkar hafa komið þar saman. Við höfum skiptst á skoðunum þar, rifist þar,
sungið þar saman, og glaðst saman þar. Við höfum syrgt þar horfna vini. Þetta
hefur verið okkar samkomustaður og tók við af Kvennó, sem konur í Grindavík höfðu
frumkvæði að byggingu á í lok kreppunnar miklu á þriðja og fjórða áratug síðustu
aldar. Grindvíkingar tóku virkan þátt í uppbyggingu þessa samkomuhúss þegar það
var byggt. Festi hefur átt sér stað í hugum Grindvíkinga í áratugi,? segir Eiríkur.
Hann telur að Festi eigi svipaðan stað í hugum Grindvíkinga og aðrar þær byggingar
sem þeir hafa staðið saman um að byggja.
?Það er nauðsynlegt fyrir byggðarlag eins og okkar að eiga stað þar sem við komum
saman á. Stundir eins og ég nefni í svari við fyrstu spurningunni kalla á það.
Þetta er vel byggt hús og það á að aðlaga það kröfum nútímans með þeim breytingum
sem eru nauðsynlegar til að svo verði. Gott væri ef efnt væri til hugmyndasamkeppni
um það hvernig húsið gæti komið að notum. Það á að byrja á því að verja það fyrir
skemmdum, síðan á að byggja það upp og bæta við eftir því sem hugmyndir koma fram
um nýtingu þess, bæði þá sem við höfum vanist og líka þá viðbótarnotkun sem hugmyndir
koma fram um. Aðalatriðið er að þetta verði áfram miðpunktur í okkar samfélagi,
og gott ef hugmyndir um aukna starfssemi koma fram,? segir Eiríkur.