Fimmtudaginn 2. október verða allar stofnanir Grindavíkurbæjar lokaðar vegna sameiginlegs starfsmannadags starfsfólks bæjarins. Bæjarskrifstofurnar, bókasafn, tónlistarskóli, grunnskólarnir (ásamt Skólaseli), leikskólinn Laut, íþróttahúsið, sundlaugin, þjónustumiðstöðin og aðrar stofnanir verða lokaðar allan fimmtudaginn, frá morgni til kvölds. Íþróttahúsið verður opnað frá kl. 16:00 og fram á kvöld.