Þórkötlustaðaréttir fóru fram núna síðastliðinn laugardag og að vanda var þar bæði líf og fjör og mikill handagangur í öskjunni. Mátti vart á milli sjá hvor hópurinn var fjölmennari, mannfólkið eða skepnurnar. Réttirnar tóku óvenju skamman tíma þetta haustið, enda einmuna blíða þennan dag og margar hendur unnu létt verk.
Fljótlega uppúr þrjú var búið að draga allt fé í dilka og fjárbændur byrjaðir að ferja féð ýmist heim í hús eða í þeirra hinstu för í sláturhús. Ljósmyndari síðunnar náði að smella nokkrum myndum af áður en fjörinu lauk en einnig fengum við tvær myndir lánaðar frá Visit Reykjanes , að sjálfsögðu með góðfúslegu leyfi.
Frá vinstri: Diljá, Sunneva Ævarsdóttir og Emilía Snærós.