Síðastliðinn laugardagsmorgun vöknuðu nemendur í 7. bekk í Grunnskóla Grindavíkur eldsnemma til þess hreinsa rusl meðfram Grindavíkurvegi, Norðurljósavegi og einnig innan lóðar hjá HS Orku og Bláa Lóninu.
Verkefnið er hluti af fjáröflun hópsins fyrir skólaferð á Reyki í Hrútafirði. Grindavíkurbær, Bláa Lónið og HS Orka styrktu krakkana, enda um mjög jákvætt umhverfisverkefni að ræða sem hefur líka forvarnargildi. Krakkarnir lærðu að umgangast umhverfið og mikilvægi þess að henda ekki rusli úr bílum, og áttu góða samverustund með foreldrum sínum.
Í heildina mættu rúmlega 30 krakkar auk foreldra og þegar yfir lauk fyllti ruslið heilan pallbíl.