Grindavíkurbær tekur þátt í Hreyfiviku (Move Week) 29. sept. - 5. okt. nk. í samstarfi við UMFÍ. Fjölbreytt dagskrá verður í boði sem auglýst verður í næstu viku á heimasíðunni auk þess sem bæklingi verður dreift í öll hús. Grindvíkingar eru hvattir til að taka þátt.
Hver er þín hreyfing?
Þetta er stórskemmtilegt heilsuverkefni þar sem vonast er til að allar stofnanir bæjarins, UMFG, félagasamtök, þjálfarar, fyrirtæki og allir áhugasamir um holla hreyfingu taki þátt. Markmið Hreyfiviku í Grindavík er að fá Grindvíkinga á öllum aldri til viðtækari þátttöku í hreyfingu, útivist og íþróttum.