Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá Grindvíkingum að langþráðar framkvæmdir við að breyta félagsheimilinu Festi í 35 herbergja gistihús eru hafnar. Ágúst Gíslason athafnamaður á Ísafirði keypti Festi 2012 og hefur hann ráðið til sín verktaka, aðallega úr Grindavík, til þess að sjá um framkvæmdirnar.
Í Festi verður gistihús með 35 tveggja manna herbergjum með baði, ásamt aðstöðu veitinga. Fjöldi starfsmanna við rekstur gistihússins verður líklega fjórir til fimm sagði Ágúst við Járngerði í fyrra en hann stefnir að því að leigja reksturinn út.