Grindavíkurbær tekur þátt í Hreyfiviku (Move Week) 29. sept. - 5. okt. nk. í samstarfi við UMFÍ. Þetta er stórskemmtilegt heilsuverkefni þar sem vonast er til að allar stofnanir bæjarins, UMFG, félagasamtök, þjálfarar, fyrirtæki og allir áhugasamir um holla hreyfingu taki þátt. Um 25 manns mætti á kynningar- og undirbúningsfund á Salthúsinu í morgun. Fundurinn tókst virkilega vel og er undirbúningurinn kominn á fullt.
Stýrihópur heldur utan um Hreyfivikuna. Aðal atriðið er að virkja sem flesta til að vera með. Leikskólar og grunnskóli taka þátt af fullum krafti, UMFG verður með opnar æfingar, bjóða foreldrum að mæta, áhugahópur mun koma að því að skipuleggja Heilsustíg og þá er ætlunin að vera með fræðslu og fyrirlestra og ýmist fleira. Þá verða fyrirtæki hvött til að vera með, bjóða jafnvel upp á heilsufarsmælingar og hvetja starfsfólk til að ganga eða hjóla í vinnuna þessa vikuna.
Markmið Hreyfiviku í Grindavík er að fá Grindvíkinga á öllum aldri til viðtækari þátttöku í hreyfingu, útivist og íþróttum.
Verkefnateymi:
1. Þorsteinn Gunnarss sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
2. Stefanía S. Jónsdóttir, forstöðukona Miðgarðs og formaður forvarnarteymis UMFG
3. Ægir Viktorsson yfirþjálfari yngri flokka hjá knattspyrnudeild
4. Jóhann Árni Ólafsson frístundaleiðbeinandi og yfirþjálfari yngri flokka hjá körfuknattleiksdeild
5. Ásrún Kristinsdóttir bæjarfulltrúi og deildarstjóri í Hópsskóla.
Þeir sem vilja koma upplýsingum á framfæri um viðburð í Hreyfivikuna geta sent upplýsingar á thorsteinng@grindavik.is, í síðasta lagi miðvikudaginn 17. sept. kl. 12:00 á thorsteinng@grindavik.is
Dagskrá Hreyfivikunnar verður send í öll hús í Grindavík fimmtudaginn 25. sept. Einnig kynnt á heimasíðum og samfélagsmiðlum.
Nánari upplýsingar um Hreyfivikuna má sjá hér: http://www.iceland.moveweek.eu/
Efsta mynd: Frá kynningarmorgunverðarfundi á Salthúsinu í morgun. Þorsteinn kynnir Hreyfivikuna.
Samfélag á hreyfingu - Hreyfivikan MOVE WEEK
Hver er þín uppáhalds hreyfing? Hver er þín hreyfing? Það er talið að um 600.000 þúsund dauðsfalla í Evrópu megi rekja beint til hreyfingarleysis. Flestir sem hreyfa sig ekki neitt segja ástæðuna vera peningaskort. Það er margt er hægt að gera til að bæta heilsu sína sem hvorki kostar krónu né mikla fyrirhöfn. Mestu máli skiptir að hafa gaman af því sem maður tekur sér fyrir hendur því það eykur líkurnar á því að maður viðhaldi heilbrigðum lífstíl.
Það eru skilaboðin í samfélaginu og boðskapurinn sem skiptir máli. Frá því að við vöknum á morgnana og förum að sofa á kvöldin þá erum við að hreyfa okkur en við þurfum að fá hjartað til að pumpa duglega að minnsta kosti í 30 mínútur á dag til að endurnýja frumurnar okkar og þannig bæta heilsuna - helst 60 mínútur. Það þurfa ekki allir að stunda fjallgöngur, æfa íþróttir, hlaupa maraþon, vera í skokkhóp eða taka þátt í þrekmótum. Það ættu allir að finna sína hreyfingu - eitthvað sem hentar hverjum og einum og hafa gaman af því. Alltof margir velja að verma sófann í stað þess að uppfylla ráðlagðan dagsskammt af hreyfingu á dag.
Hvernig fáum við fleiri til að stunda hreyfingu sér til heilsubótar? Allsstaðar í heiminum er fólk að reyna að finna töfralausnina og Hreyfivikan MOVE WEEK sem fer fram um gjörvalla Evrópu dagana 29. september - 5. október 2014 líka - en bara aðeins öðruvísi!
Hreyfivikan MOVE WEEK er hluti af "The NowWeMove 2012 - 2020" herferð International Sport and Culture Association (ISCA) sem hefur það að markmiði að kynna kosti þess að taka virkan þátt í hreyfingu og íþróttum til heilsubótar. Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) er aðili að ISCA og tekur þátt í verkefnum samtakanna.
Framtíðarsýn MOVE WEEK herferðarinnar er "að 100 milljónir fleiri Evrópubúa verði orðnir virkir í hreyfingu og eða íþróttum fyrir árið 2020" og áhersla lögð á að "að fólk finni SÍNA hreyfingu sem hentar því". Hreyfivikan er almenningsíþrótta verkefni í samstarfi yfir 250 samtaka í Evrópu sem öll eru aðilar að ISCA. Það sem er öðruvísi við Hreyfivikuna MOVE WEEK er að þessi herferðir er ekki sniðin að ákveðinni íþrótt eða ákveðinni hreyfingu heldur getur hvert samfélag sniðið sína Hreyfiviku eftir sínu svæði. Klæðskerasniðið sína Hreyfiviku og nýtt til þess alla þá kosti sem samfélagið býr yfir til að smita frá sér jákvæða nálgun á hreyfingu.
Heilsa er líkamleg, andleg og félagsleg og maður er manns gaman. Því er hægt að blanda öllum þessum þáttum hæglega saman og heilsuávinningur ólíkra aldurshópa kórónaður til dæmis með gönguferð leikskólabarna á harmonikkuball á dvalarheimili. Bjóða frítt í sund, standa fyrir sögugöngu, boðsæfingar íþróttadeilda hjá börnum fyrir foreldra eða heilsufarsmæling hjá heilsugæslu. Möguleikarnir eru endalausir.