Hreyfivika í Grindavík í haust - Kynningarmorgunverđarfundur á Salthúsinu

  • Fréttir
  • 4. september 2014

Grindavíkurbær tekur þátt í Hreyfiviku (Move Week) 29. sept. - 5. okt. nk. í samstarfi við UMFÍ. Þetta er stórskemmtilegt heilsuverkefni þar sem við viljum fá allar stofnanir bæjarins, UMFG, félagasamtök, þjálfara, fyrirtæki og alla áhugasama um holla hreyfingu til þess að taka þátt á einn eða annan hátt. Það geta verið fyrirlestrar, opnir tímar, skipulagðir hreyfitímar eða hvaða viðburðir sem er sem tengjast hreyfingu og hollustu að einhverju leyti. Boðað er til morgunverðarkynningarfundar á Salthúsinu næsta fimmtudag (11. sept.) kl. 8 um morguninn. Dagskrá: 

 

  • Hollur morgunverður í boði Hreyfivikunnar.
  • Kynning á Hreyfivikunni.
  • Hugmyndavinna og skipulag.
  • Stofnun stýrihóps.

 

Áætlað er að fundurinn taki 1 klst.

Vinsamlegast skráið þátttöku á kynninguna á Salthúsinu með því að senda tölvupóst á netfangið thorsteinng@grindavik.is


Markmið Hreyfivikunnar „MOVE WEEK" er að kynna kosti þess að taka virkan þátt í íþróttum og hreyfingu. Mikill fjöldi samtaka um allan heim, fyrirtæki og einstaklingar leggja sitt að mörkum við að skipuleggja viðburði, kynna það starf sem þegar er til staðar og smita frá sér jákvætt hugarfar tengt hreyfingu í Hreyfivikunni.

Nánari upplýsingar um Hreyfivikuna má sjá hér: http://www.iceland.moveweek.eu/


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir