Glæsilegir vinningar verða á 40 ára afmælisgolfmót Grindavíkurbæjar á laugardaginn sem fram fer á Húsatóftavelli. Meðal annars verður útivistarfatnaður og undirfatnaður frá Ullmax í Grindavík, vetrarkort og heilsuvörur frá Bláa Lóninu, inneignarkort í Nettó, matarvinningar á Salthúsinu, Bryggjunni og Papas pizza, hársnyrtivörur frá Betra hár, árskort í sundlaugina og fleira. Að loknu mótinu, kl. 18:30 verður hóf í golfskálanum þar sem verða veitingar og verðlaun afhent.
Grindavíkurbær og Golfklúbbur Grindavíkur ætla að halda upp á 40 ára afmæli Grindavíkurbæjar með stórglæsilegu golfmóti laugardaginn 30. ágúst nk. á Húsatóftavelli. Vegleg verðlaun og teiggjöf. Nándarverðlaun verða á öllum par 3 brautum vallarins. Mótinu lýkur með verðlaunafhendingu og veitingum. Dregið verður úr skorkortum.
Skráning er hafin á www.golf.is og er þátttökugjaldið aðeins 2.500 kr.
Leikið verður með punktamótsfyrirkomulagi og jafnframt veitt verðlaun fyrir lægsta skor. Ræst verður út frá kl. 7:30-14:00. Kylfingar eru hvattir til þess að taka þátt í afmælismóti Grindavíkurbæjar.