Heimasíðunni barst eftirfarandi orðsending frá aðstandendum Reykjanes jarðvangs og birtum við hana hér á síðunni í von um að sem flestir hlutaðeigandi aðilar sjái hana. Ef þú ert matvælframleiðandi, veitingahúseigandi eða ferðaþjónustuaðili, ættir þú alls ekki að láta þetta framhjá þér fara.
,,Kæri framleiðandi matvæla / veitingahúsaeigandi / ferðaþjónustuaðili í Reykjanes jarðvangi
Reykjanes jarðvangur boðar til kynningarfundar á verkefninu "GEOfood" föstudaginn 29. ágúst nk. kl. 9:00. Fundurinn fer fram í Eldey, frumkvöðlasetri á Ásbrú.
Á fundinum stendur til að kynna markmið verkefnisins „GEOfood" og hugsanlegan ávinning þátttakenda í því. Þátttakendur geta verið framleiðendur matvæla, veitingastaðir og ferðaþjónustuaðilar í sveitarfélögunum Reykjanesbæ, Grindavík, Vogum, Sandgerði og Garði.
Verkefnið er samstarfsverkefni nokkurra norrænna jarðvanga og fékk hæsta styrkinn úr norræna Kreanord sjóðnum í ár. Það snýr að matvælaframleiðslu innan norrænna jarðvanga, þróun nýrra leiða til að koma henni á framfæri innan jarðvanganna og auka verðmæti afurðanna. Þá er verið að leita leiða til að auka samvinnu milli framleiðenda matvæla, veitingahúsaeigenda og ferðaþjónustuaðila í jarðvöngunum.
Um er að ræða afar áhugavert verkefni sem gæti skilað þátttakendum og svæðinu okkar töluverðu ef vel tekst til.
Fundurinn er öllum opinn og felst engin skuldbinding í mætingu. Eins og áður segir hefst fundurinn kl. 9. Gert er ráð fyrir að hann standi í um klukkutíma. Boðið verður upp á léttar veitingar.
Undirritaður veitir nánari upplýsingar og svarar fyrirspurnum ef einhverjar eru.
Með kveðju,
Eggert Sólberg Jónsson
verkefnastjóri"