Fundur 1357

  • Bćjarráđ
  • 20. ágúst 2014

1357. fundur Bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 19. ágúst 2014 og hófst hann kl. 17:00.


Fundinn sátu:
Hjálmar Hallgrímsson formaður, Bryndís Gunnlaugsdóttir Holm aðalmaður, Kristín María Birgisdóttir varaformaður, Marta Sigurðardóttir áheyrnarfulltrúi, Róbert Ragnarsson bæjarstjóri, Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Ásmundur Jónsson slökkviliðsstjóri og Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.

Fundargerð ritaði: Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri.

Dagskrá:

1. 1311009 - Samþykkt um fráveitu
Samþykkt um fráveitu Grindavíkur tekin fyrir að nýju. Samþykktin var afgreidd við síðari umræðu í bæjarstjórn 25. febrúar síðastliðinn, en fyrri umræða fór fram 17. desember 2013 og var tillagan í kjölfarið send umhverfisráðuneytinu til umsagnar. Engar athugasemdir bárust frá ráðuneytinu. Þann 29. júlí 2014, bárust hinsvegar athugasemdir frá ráðuneytinu. Bæjarráð átelur þann drátt sem hefur orðið á afgreiðslu ráðuneytisins á erindinu.

Fyrir bæjarráði liggur tillaga að breyttri samþykkt um fráveitu Grindavíkur, þar sem tekið er tillit til ábendinga og athugasemda ráðuneytisins.

Bæjarráð vísar tillögunni til umræðu í bæjarstjórn.

2. 1303048 - Tillaga að nýjum samþykktum um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar sbr. 9 gr. laga nr. 138/2011
Tillaga að nýjum samþykktum um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar tekin til umræðu milli fyrri og seinni umræðu í bæjarstjórn. Fyrri umræða fór fram 25. mars síðastliðinn.

Bæjarráð vísar tillögunni til síðari umræðu í bæjarstjórn.

3. 1210093 - Endurskoðun lögreglusamþykktar fyrir Grindavíkurbæ
Grindavíkurbær hefur ekki afgreitt sérstaka lögreglusamþykkt, heldur gildir Reglugerð um lögreglusamþykktir nr. 1127/2007 fyrir Grindavíkurbæ.

Lög um lögreglusamþykktir og reglugerðin lögð fram.

Bæjarráð vísar málinu til umræðu í bæjarstjórn.

4. 1406082 - Reglur um greiðslu nefndalauna tímabundinna nefnda og starfshópa
Drög að reglum um greiðslu nefndarlauna tímabundinna nefnda og starfshópa lagðar fram.

Bæjarráð leggur til ákveðnar breytingar á drögunum og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarstjórn.

5. 1408044 - Slökkvilið Grindavíkur óskar eftir körfubíl
Ásmundur Jónsson slökkvistjóri fylgir eftir minnisblaði með tillögu um að keyptur verði körfubíll til slökkvi- og björgunarstarfa.

Bæjarráð óskar eftir frekari upplýsingum og frestar afgreiðslu.

6. 1408052 - Fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar 2015-2018
Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir tillögu að tímaáætlun fjárhagsáætlunar vinnu 2015-2018.

Stefnt er að fyrri umræðu í bæjarstjórn um fjárhagsáætlun 27. október og síðari umræðu 24. nóvember.

7. 1312028 - Kvörtun vegna meints eineltis gagnvart nemanda
Kristín María Birgisdóttir vék af fundi við afgreiðslu málsins.

Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs tók þátt í afgreiðslu málsins.
Afgreiðsla færð í trúnaðarbók.

8. 1307003 - Starfsmannamál á Túngötu 15-17
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs tók þátt í afgreiðslu málsins.
Afgreiðsla færð í trúnaðarbók.

9. 1408066 - Breytingar á lögreglu og sýslumannsembættum
Hjálmar Hallgrímsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.

Bæjarráð Grindavíkur þakkar þeim Sigríði Björk Guðjónsdóttur lögreglustjóra og Þórólfi Halldórssyni sýslumanni fyrir samstarfið undanfarin ár og óskar þeim velfarnaðar á nýjum vettvangi. Jafnframt óskar bæjarráð þeim Ólafi Helga Kjartanssyni lögreglustjóra og Ásdísi Ármannsdóttur sýslumanni til hamingju með nýjar stöður á Suðurnesjum og væntir góðs samstarfs.

Bæjarráð Grindavíkurbæjar hvetur innanríkisráðherra til að kanna við þessi tímamót hvort ekki sé ástæða til að endurskoða staðsetningu opinberra embætta í umdæminu, með það fyrir augum að aðsetur sýslumanns eða lögreglustjóra verði í Grindavík.

10. 1408005 - 678.fundur haldinn í stjórn S.S.S.
Fundargerðin er lögð fram.

11. 1407001F - Hafnarstjórn Grindavíkur - 427
Fundargerðin er lögð fram.

12. 1406008F - Félagsmálanefnd - 38
Fundargerðin er lögð fram.

13. 1406007F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 42
Fundargerðin er lögð fram.

14. 1408042 - Fundargerð 450. fundar stjórnar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja
Fundargerðin er lögð fram.

15. 1408003F - Hafnarstjórn Grindavíkur - 428
Fundargerðin er lögð fram.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20:40.

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FUNDARGERĐIR

Bćjarstjórn / 17. apríl 2024

Fundur 564

Skipulagsnefnd / 10. apríl 2024

Fundur 131

Bćjarstjórn / 4. apríl 2024

Fundur 562

Bćjarstjórn / 10. apríl 2024

Fundur 563

Bćjarstjórn / 26. mars 2024

Fundur 561

Skipulagsnefnd / 25. mars 2024

Fundur 130

Skipulagsnefnd / 21. febrúar 2024

Fundur 129

Skipulagsnefnd / 25. mars 2024

Fundur 130

Skipulagsnefnd / 25. mars 2024

Fundur 130

Skipulagsnefnd / 25. mars 2024

Fundur 130

Bćjarstjórn / 19. mars 2024

Fundur 560

Bćjarstjórn / 12. mars 2024

Fundur 559

Bćjarstjórn / 5. mars 2024

Bćjarstjórn / 20. febrúar 2024

Fundur 556

Bćjarstjórn / 13. febrúar 2024

Fundur 555

Bćjarstjórn / 8. febrúar 2024

Fundur 554

Bćjarstjórn / 30. janúar 2024

Fundur 553

Bćjarstjórn / 23. janúar 2024

Fundur 552

Bćjarstjórn / 16. janúar 2024

Fundur 551

Bćjarstjórn / 9. janúar 2024

Fundur bćjarstjórnar nr. 550

Bćjarstjórn / 29. desember 2023

Fundur bćjarstjórnar nr. 549

Bćjarstjórn / 27. desember 2023

Fundur bćjarstjórnar nr. 548

Bćjarráđ / 5. desember 2023

Fundur 1659

Bćjarstjórn / 28. nóvember 2023

Fundur 547

Bćjarráđ / 7. nóvember 2023

Fundur 1658

Bćjarstjórn / 31. október 2023

Fundur 544

Afgreiđslunefnd byggingamála / 17. október 2023

Fundur 78

Skipulagsnefnd / 16. október 2023

Fundur 127

Frćđslunefnd / 12. október 2023

Fundur 136

Frćđslunefnd / 21. september 2023

Fundur 135