Það hefur sennilega ekki farið framhjá neinum sem keyrt hefur Grindavíkurveginn nýlega að við verksmiðju Carbon Recycling International við Svartsengi standa nú yfir töluverðar framkvæmdir. Unnið er að stækkun verksmiðjunnar og í lok árs er gert ráð fyrir að framleiðsla hennar muni þrefaldast og verði þannig hægt að fullnýta framleiðslugetu verksmiðjunnar.
Vísir.is fjallaði um framkvæmdirnar:
,„Við vinnum nú að stækkun verksmiðjunnar sem mun þrefalda framleiðsluna og gerum ráð fyrir að klára það verkefni á síðasta ársfjórðungi þessa árs," segir Ólafur E. Jóhannsson, forstöðumaður samskipta- og sölusviðs Carbon Recycling International (CRI).
Verksmiðja fyrirtækisins í Svartsengi við Grindavík, þar sem metanól er framleitt með endurvinnslu á koltvísýringsútblæstri og raforku, mun eftir breytingar CRI geta framleitt um fimm milljónir lítra af eldsneytinu á ári.
„Við erum að bæta við tækjabúnaði til að fullnýta framleiðslugetu verksmiðjunnar. Hún er hönnuð og uppsett fyrir fimm milljónir lítra og nú erum við að bæta við rafgreinum sem eru notaðir við framleiðsluna en þeir koma frá Kína."
Heildarkostnaður verkefnisins hleypur að sögn Ólafs á hundruðum milljóna króna.
„Helstu viðskiptavinir okkar hér á landi eru framleiðendur á bíódísil og við erum einnig að selja til fyrirtækis í Svíþjóð sem framleiðir hágæða bíódísil með mjög lágu sótspori. Svo erum við jafnframt að skoða markaðsmöguleika í öðrum löndum Evrópu og í viðræðum við olíufélögin hér heima vegna nýrra laga um íblöndun endurnýjanlegs eldsneytis í jarðefnaeldsneyti," segir Einar."