Ţorbjörninn í Víkurfréttum

  • Fréttir
  • 6. ágúst 2014

Fyrr í sumar auglýsti Heklan eftir einstaklingum sem hefðu áhuga á því að blogga um Suðurnesin. Grindvíkurinn Bryndís Gunnlaugsdóttir var ein af þeim sem bauð fram sína þjónustu og hefur bloggað um Grindavík á tumblr síðu sinni . Við höfum áður birt pistla eftir hana á Facebook síðu okkar og nú hefur pistill hennar um Þorbjörn ratað á síður Víkurfrétta . Við birtum þessa umfjöllun um ,,stórasta" fjall á Íslandi að sjálfsögðu líka:

Sumum finnst Ísland vera stórasta land í heimi. Grindvíkingum finnst Þorbjörn vera stórasta fjall á Íslandi.

Þorbjörn er í hugum Grindvíkinga fjall og ekkert annað. Það má greina innfædda Grindvíkinga frá aðfluttum með því að heyra hvernig fólk talar um Þorbjörn. Ef fólk verður á þau mistök að kalla fjallið hól eða fell - þá ertu mjög líklega aðfluttur Grindavíkingur eða bara alls ekki Grindvíkingur (skondið í ljósi þess að fjallið heitir Þorbjarnarfell!).*

Þorbjörn er drauma-bæjarfjall. Mátulega stórt og vegslóði upp sem leikskólabörn geta trítlað upp á góðviðrisdegi, skemmtilegir slóðar fyrir þá sem vilja erfiðari fjallgöngu, þjóðsögur og þjófagjá upp á fjallinu og þegar ég var yngri mátti sjá stöku hermenn úr bandaríska hernum á æfingu. Skógur bæjarins er við fjallsræturnar og skemmtilegur slóði hringinn í kringum fjallið. Svo búa jólasveinarnir og Grýla í fjallinu (sannanir verða lagðar fram í annarri færslu)

Svo hefur þetta fjall birst í Simpsons - það eru fá íslensk fjöll sem státa af því!

*Ég vil taka fram að allir sem búa í Grindavík eru jafn miklir Grindvíkingar í mínum huga, hvort sem þeir eru innfæddir eða aðfluttir.

Bryndís Gunnlaugsdóttir

 

Hér má svo lesa nánari umfjöllun um Þorbjörn á Ferlir.is


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir