Vegna mikilla vinsælda og fjölda áskorana verður enn og aftur opið svið á Bryggjan Kaffihús í Grindavík frá kl. 21:00 til kl. 00:00 í kvöld, föstudaginn 25. júlí. Aðgangur ókeypis.
Tónlistarmennirnir Halldór Lárusson trommuleikari, Pálmi Sigurhjartarson píanóleikari & Þorgils Björgvinsson alltmögulegtleikari munu leika á opnu sviði á Bryggjunni og gefst gestum og gangandi tækifæri á að stíga á svið með þeim félögum og taka lagið. Nú, svo má einnig segja sögur eða taka í hljóðfæri eða hvað sem er.
Ókeypis er inn og eru allir hjartanlega velkomnir á flottasta kaffihús landsins.