Grindavíkurbær auglýsir eftir starfsmanni til að starfa við íþróttamiðstöðina. Helstu verkefni eru öryggisgæsla í sundlaug, klefavarsla í kvennaklefum,bæði í sundlaug og íþróttahúsi, ræstingar, eftirlit og afgreiðsla. Um er að ræða 85% starf í vaktavinnu. Leitað er að einstaklingi sem hefur;
- ríka þjónustulund,
- góða skipulagshæfileika, getur unnið sjálfstætt og tekið frumkvæði,
- góða hæfni í mannlegum samskiptum,
- reynslu og ánægju af því að vinna með börnum og unglingum
- þekkingu í skyndihjálp og getu til að standast kröfur sem gerðar eru til sundlaugarvarða.
Vakin er athygli á því að ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐ GRINDAVÍKUR ER TÓBAKSLAUS VINNUSTAÐUR.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Suðurnesja.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hermann Guðmundsson forstöðumaður íþróttamannvirkja í síma 660 7304, netfang: hermann@grindavik.is .
Umsækjendur fylli út rafræna umsókn á heimasíðu Grindavíkurbæjar (www.grindavik.is/atvinna ), í síðasta lagi mánudaginn 11. ágúst n.k.