Joni Mitchell heiðurstónleikar verða á kaffihúsinu Bryggjunni fimmtudaginn 24. júlí kl. 21:00 í tilefni þess að um þessar mundir eru liðin fimm ár síðan hljómsveit skipuð frábærum listamönnum efndi til fyrstu Joni Mitchell tribute tónleikanna.
Í tilkynningu segir:
„Í fyrsta skipti förum við til Grindavíkur og höldum tónleika á einu fallegasta kaffihúsi landsins, Bryggjunni. Tónleikarnir fara fram fimmtudagskvöldið 24.júlí og hefjast kl. 21:00. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Flutt verða lög kanadísku söngkonunnar Joni Mitchell í bæði nýjum og eldri útsetningum. Lög á borð við "A Case of You", "Goodbye Pork Pie Hat" og " Woodstock" fá að hljóma.
Hljómsveitina skipa sem fyrr:
Erla Stefánsdóttir - söngur
Sigmar Þór Matthíasson - bassi
Hlynur Stefánsson - gítar
Ingi Bjarni Skúlason - píanó/hljómborð
Örvar Erling Árnason - trommur
Nánar um hljómsveitina:
Sumarið 2009 vildu söngkonan Erla Stefánsdóttir og bassaleikarinn Sigmar Þór Matthíasson sameina áhuga sinn á kanadísku söngkonunni Joni Mitchell. Þau fengu nokkra vini með sér og fyrstu tónleikar "heiðurs-sveitarinnar" voru í lok júlí 2009. Síðan eru liðin 5 ár og hefur verkefnið aldeilis undið upp á sig. Tónleikarnir eru orðnir nokkuð margir - langflestir á Café Rósenberg en einnig á tónleikaröð Jazzklúbsins Múlans og á Akureyri. Hljómsveitin leikur einungis lög eftir Joni Mitchell, einkum af plötunum Blue, Ladies of the canyon og Mingus. Dæmi um lög eru: A Case of You, Goodbye Pork Pie Hat, Big Yellow Taxi og Woodstock.
Sveitin hefur ekki komið mikið fram upp á síðkastið en er um þessar mundir að skríða úr hýðinu og fagna 5 ára samstarfsafmælinu. Meðlimir hljómsveitarinnar kynntust í Tónlistarskóla FÍH þar sem þau lögð öll stund á jazznám.
Hér má finna eventið á facebook: https://www.facebook.com/events/282183485286548/"