Eins og venjan er á sumrin þá stendur Grindavíkurbær fyrir leikjanámskeiðum fyrir krakka á aldrinum 6-12 ára. Að þessu sinni eru námskeiðin undir stjórn þeirra Söru Hrundar Helgadóttur og Önnu Mekkín Reynisdóttur.
Námskeiðin hafa farið mjög vel af stað en fyrsta námskeiði sumarsins lauk föstudaginn 20. júní og endaði á skemmtilegri grillveislu. Mikið fjör hefur verið hjá börnunum og var fyrsti hópurinn heilt yfir heppinn með veður en þau hafa til dæmis farið í lautarferð, hjólaferð og svo gerðu þau sér ferð til Þorlákshafnar og fóru þar í sund. Þær Sara og Anna hafa fengið hjálp frá flokkstjórum og nemendum Vinnskólans í Grindavík og hafa þau líka skemmt sér afar vel.
Þriðja námskeið sumarsins hófst nú á mánudag en Sara og Anna vilja einnig minna bæjarbúa á það að skráning í fjórða og síðasta námskeið sumarsins er í fullum gangi. Hægt er að skrá börnin sín með því að senda póst á leikur@grindavik.is
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson, fréttaritari vinnuskólans.
Hér eru svo nokkrar myndir frá fyrsta námskeiðinu