Á fundi nýrrar bæjarstjórnar var Róbert Ragnarsson endurráðinn sem bæjarstjóri bæjarstjóri Grindavíkurbæjar á kjörtímabilinu. Ráðningarsamningur við bæjarstjóra var lagður fram til staðfestingar og var hann samþykktur af öllum bæjarfulltrúum. Þetta er því annað kjörtímabilið sem Róbert verður bæjarstjóri í Grindavík en þar áður var hann bæjarstjóri í Vogum.
Myndin var tekin á 40 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar 10. apríl síðastliðinn af Róbert og Ólafi Ragnari Grímssyni forseta Íslands.