Bjarni Hallfreðsson færir okkur fréttir úr Vinnuskólanum í sumar. Nú segir hann okkur frá ferð sem farin var í Lágafell í samvinnu við GFF í þeim tilgangi að græða upp landið.
Þeir félagar Björn Guðbrandur og Kristján úr samtökunum Gróður fyrir fólk í Landnámi Ingólfs (GFF) kíktu við í Grindavíkina fögru á dögunum og verkefni þeirra var að dreifa lífrænum úrgangi í Lágafelli þar sem mold og gróður eiga erfitt uppdráttar. Þessi lífræni úrgangur er kallaður molta og er hann mikið notaður um land allt. Félagar í GFF hafa unnið í Lágafelli áður á síðustu árum og sést mikill munur á svæðinu frá ári til árs.
Að sjálfsögðu fóru krakkar í 8. bekk á vegum Vinnuskóla Grindavíkur undir stjórn Egils Birgissonar í Lágafell og hjálpuðu Birni og Kristjáni en með þeim voru erlendir sjálfboðaliðar á vegum GFF. Við viljum einnig benda á heimasíðu GFF sem er gff.is
- Bjarni Hallfreðsson