Fótboltaskóli UMFG (8. fl) hefst á morgun, mánudaginn 16. júní

  • Fréttir
  • 15. júní 2014

Nýtt námskeið hefst á mánudaginn (16. júní.) í Hópi. Æfingar verða kl.17.00-18.00 á mánudögum og þriðjudögum. (Frí 17. júní ) Námskeiðið er 8 skipti og kostar 4500 krónur. 50% afsláttur fyrir yngra systkini/tvíbura. Við gerum ráð fyrir því að skipta hópnum niður til að allir fái verkefni við hæfi. Við höfum áhuga á að hafa stelpuhóp en það fer svolítið eftir fjöldanum hvort við getum það.

Námskeiðið er ætlað börnum sem fædd eru 2008, 2009 og 2010. Yngstu börnin þurfa oftast meiri stuðning og er mikilvægt að einhver fylgi þeim. Algengt er að þeir sem eru yngstir eða hafa ekki komið áður endist í styttri tíma. Það er eðlilegt og því í góðu lagi að hætta fyrr eða hvíla sig ef þess þarf!

Skráning á námskeiðið fer fram á https://www.facebook.com/fotboltaskoliumfg eða með því að senda skilaboð á Pálmar í síma 863-5272. Best er ef þið sendið mér skilaboð þar sem fram kemur: nafn og kennitala barns og gsm-símanúmer foreldris.
Tekið verður við greiðslum fyrir fyrstu æfinguna eða frá kl.16.30 mánudaginn 16. júní.

Þjálfari er: Pálmar Örn Guðmundsson.

Sjáumst spræk!

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir