Á þjóðhátíðardaginn 17. júní kl. 20:00 verður bubblefótboltamót á Grindavíkurvelli fyrir 14-18 ára. Bubblebolti er eins og venjulegur fótbolti þar sem liðið sem skorar flest mörk vinnur. Eini munurinn er að hver og einn leikmaður spilar inni í stórri plastkúlu sem ver líkamann frá höfði niður að hnjám. Fótboltinn verður ennþá skemmtilegri þar sem leikmenn geta klesst á andstæðinginn og velt honum um koll. Ólíkt öðrum íþróttum er hvatt til þess að leikmenn lendi í samstuði! Allt er þetta gert til að komast að fótboltanum og fá frið til að skora mark.
Fyrirkomulag: 5 saman í liði (mega vera 10 í leikmannahóp). 8 lið, skipt í tvo riðla, sigurvegarinn í hvorum liði keppir til úrslita. Leiktími: 1x8 mín.
Skráning liða á netfangið johannao@grindavik.is eða í síma 660 7326. Átta fyrstu liðin sem skrá sig komast í keppnina.
ATH! Ef blautt er í veðri færist keppnin inn í íþróttahús.