Aukin ađsókn hjá Orkubúinu
Mikil aukning varđ á ađsókn í Orkubúinu-Heilsurćkt ehf. á síđasta ári en ţađ
er í eigu Ásdísar Sigurđardóttur, íţróttakennara, og Kristins Reimarssonar, íţróttafrćđings.
Samkvćmt skráningakerfi Orkubúsins voru heimsóknir á síđasta ári rétt um 20 ţúsund
og jókst um 5000 á milli ára. Frá árinu 2005 hefur ađsóknin aukist um nánast helming.
Ađ sögn Ásdísar vantar inn í ţessar 20 ţúsund heimsóknir á síđasta ári alla ţá
eldri borgara sem og skólanemendur sem komiđ hafa í Orkubúiđ. Skólanemendurnir
eru frá grunnskólanum og koma tvisvar til ţrisvar sinnum í viku. Einnig mćtti
bćta viđ öllum ţeim sem voru í skokkhópum í sumar og hafa mćtt í blak á vegum
Orkubúsins.
Ađ sögn Ásdísar er augljós vitundarvakning hjá Grindvíkingum um gildi aukinnar
hreyfingar og eflingu almenningsíţrótta og ţetta sé ţáttur sem íţróttahreyfingin
og bćjarfélagiđ ţurfi ađ leggja enn meiri áherslu á.
Ásdís segir spennandi ár framundan hjá Orkubúinu og hvetur Grindvíkinga til ţess
ađ koma ţangađ til ađ koma sér í gott líkamlegt og andlegt form.