Þann 28. maí síðastliðinn var formlega vígsla á tveimur gönguleiðum við Þorbjarnarfell. Um samstarfsverkefni var að ræða, milli Menningarráðs Suðurnesja, Grindavík Experience og Grindavíkurbæjar. Fyrsta áfanga verkefnisins er því lokið með uppsetningu skilta og kynningu á gönguleiðum. Tvær gönguleiðir hafa nú verið stikaðar, önnur í kring um Þorbjörn og hin yfir Þorbjörn.
Fyrir göngunni þann 28. maí fóru þau Erling Einarsson, Hjördís Rósa Halldórsdóttir og Sigurður Óli Hilmarsson. Alls voru 15 manns í göngunni en einnig mættu þau stórum hópi frá Lífsstíl í Reykjanesbæ sem og nokkrum hestamönnum.
Það má með sanni segja að svæðið í kringum Þorbjörn sé að verða eitt af vinsælustu útivistarsvæðunum á Reykjanesi. Þar ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi, hvort sem það er ganga á fjallið sjálft, með því glæsilega útsýni sem því fylgir, ganga í náttúrufegurðinni allt um kring eða einfaldlega afslöppun í skógræktinni í norðurhlíð fjallsins.
Svo má ekki gleyma að nú er hægt að ganga alla leið frá Grindavík og í Bláa Lónið á vel merktum og vönduðum göngustígum.