Eftirvænting var ríkjandi á skólaslitum í 9.-10. bekk í Grunnskóla Grindavíkur. Við þessi tímamót kveður stór hópur nemenda skólann sem verið hefur vinnustaður þeirra í tíu ár. Húsfyllir var að vanda, nemendur, gestir þeirra og allir starfsmenn skólans.
Í byrjun spilaði nemandi í 5.K, Olivia Ruth Mazowiecka nemi í tónlistarskólanum á fiðlu. Petrína Baldursdóttir deildarstjóri bauð alla velkomna og fór yfir helstu viðburði vetrarins meðal annars þátttöku skólans í Skólahreysti, árshátíð og spurningakeppni á elsta stigi sem verið hefur árlegur viðburður. Elsa Katrín Eiríksdóttir formaður nemendaráðsins fór yfir helstu þætti í félagslífi liðins vetrar.
Guðbjörg Sveinsdóttir aðstoðarskólastjóri veitti svo ýmiss konar viðurkenningar til nemenda, bæði fyrir eftirtektarverða framgöngu og einnig framúrskarandi námsárangur.
Eftirtaldar viðurkenningar voru veittar:
Fyrir bestan námsárangur í 9.-10.bekk, Agata Jóhannsdóttir og Þórveig Hulda Frímannsdóttir í 10.F.
Fyrri góðan árangur í ensku, Þórveig Hulda Frímannsdóttir í 10.F og Katrín Lóa Sigurðardóttir í 10.F.
Danska sendiráðið og skólinn veitti viðurkenningu fyrir góðan árangur í dönsku á grunnskólaprófi. Það voru Guðný Dröfn Guðbjartsdóttir í 10.E, Unnur Guðmundsdóttir í 10.E og Elsa Katrín Eiríksdóttir í 10.E sem fengu það.
Fyrir góðan árangur í íslensku á grunnskólaprófi fékk Þórveig Hulda Frímannsdóttir viðurkenningu. Hún hefur einnig lokið 103 og 203 í íslensku á framhaldsskólastigi.
Fyrir góðan árangur í stærðfræði á grunnskólaprófi, Agata Jóhannsdótir og Þórveig Hulda Frímannsdóttir í 10. F. Þær hafa báðar lokið við 103 og 203 í stærðfræði á framhaldsskólastigi. Landsbankinn veitti þeim verðlaunin.
UMFG veitti bikar fyrir góðan árangur í íþróttum pilta og stúlkna, féll það í hlut Elsu Katrínar Eiríksdóttur í 10.F og Ingva Þórs Guðmundssonar í 10.E.
Viðurkenningu fyrir hjálpsemi, jákvæðni og dugnað fékk Sverrir Týr Sigurðsson í 10. E.
Viðurkenningu fyrir vel unnin störf í þágu nemenda fékk Vigri Bergþórsson í 10.F.
Samkeppni stuttmyndagerð í ensku er fastur liður í efstu bekkjunum. Veitt voru verðlaun fyrir eftirtaldar myndir.
Í fyrsta sæti, nemendur úr 10. bekkjunum sem unnu myndina Hunger games.
Í örðu sæti, nemendur úr 10. bekkjunum sem unnu myndina Rocky 4.
Í þriðja sæti, nemendur úr 9. og 10.bekk sem unnu myndina Boat smuggler.
Allir nemendur í 10. bekk komu upp á svið og veittu vitnisburði um grunnskólapróf viðtöku
og eina rós. Það voru kennararnir Ellert Magnússon og Kristín Mogensen ásamt Halldóru Magnúsdóttur skólastjóra sem afhentu nemendum prófskírteinið. Umsjónarkennararnir Frímann Ólafsson og Ellert Magnússon voru einnig kallaðir upp á svið og þökkuðu nemendur þeim samveruna á síðustu árum með veglegri gjöf. Þá kallaði Halldóra eftir þeim kennurum sem eru að hætta eða á leið í námsleyfi og í barnsburðarleyfi og gaf þeim rós í kveðjuskyni með ósk um að þeir kæmu aftur til starfa. Halldóra rifjaði m.a. upp afmælisdag Grindavíkurbæjar, heimsókn forsetans og föruneytis hans í þemaviku skólans. Sleit hún skólanum eins og sagt er og að lokum var 10. bekkingum ásamt gestum og starfsfólki skólans boðið í kaffisamsæti á efri hæð skólans.
Guðbjörg Sveinsdóttir aðstoðarskólastjóri veitir Þórveigu Huldu Frímannsdóttur viðurkenningu fyrir íslensku.
Katrín Lóa Sigurðardóttir og Þórveig Hulda Frímannsdóttir fengu viðurkenningu í ensku.
Guðný Dröfn Guðbjartsdóttir, Unnur Guðmundsdóttir og Elsa Katrín Eiríksdóttir fengu viðurkenningu í dönsku.
Agata Jóhannsdóttir og Þórveig Hulda Frímannsdóttir voru með bestu meðaleinkunnina en þær fengu einnig viðurkenningu fyrir stærðfræði frá Landsbankanum.
Vigri Bergþórsson ásamt Guðbjörgu en hann fékk viðurkenningu fyrir störf í þágu nemenda.
Elsa Katrín Eiríksdóttir og Ingvi Þór Guðmundsson fengu íþróttabikarinn frá UMFG.
Í 3. sæti fyrir stuttmynd: Boris, Elvar, Ingvi Þór, Nökkvi, Hilmar og Pétur Bjarni. Á myndina vantar
Sverri Tý.
Í öðru sæti fyrir stuttmynd: Ólafur Þór, Smári, Marcin, Magnús Ari og Vigri.
Í 1. sæti fyrir stuttmynd: Edda Sól, Svava Lind, Unnur, Guðný Dröfn, Þórveig Hulda og Elsa Katrín.
Sverrir, Karel, Gabríel og Sólberg voru kallaðir upp á svið og þeim færðar þakkir fyrir jákvæðni og sveigjanleika í þemavikunni.
Kristín Helga tekur við prófspjaldi úr hendi Kristínar og Halldóru.
Guðmundur Jónsson tekur traustataki í hönd Kristínar Mogensen, Halldóra fylgist með.
Bjarghildur Vaka Einarsdóttir tekur við prófskírteini sínu.
Naomie Lind Jónasdóttir brosir sínu blíðasta þegar hún kveður Ellert umsjónarkennarann sinn og Halldóru skólastjóra.
Ellert tekur við þakklætivotti frá nemendum sínum í 10. E.
Frímann Ólafsson tekur við þakklætisvotti frá nemendum sínum í 10. F.
Sindri Freyr ásamt Sólveigu móður sinni og Guðrún Ingu náms- og starfsráðgjafa.
Alexander Már Bjarnason með foreldrum sínum.
Þær brostu blítt dömurnar enda sumar og sól framundan.
Jón Víðir Njálsson ásamt systur sinni.
Alma Þöll Ólafsdóttir blómarós.
Guðný Dröfn ásamt Dagmar móður sinni og Þórdísi Ágústsdóttur ömmu sinni sem starfaði við skólann um árabil.