Skólaslit unglingastigsins eru tvískipt þar sem um mikinn fjölda er að ræða. Annars vegar 7.-8. bekkur og hins vegar 9.-10. bekkur. Þegar 7.-8. bekkur var kvaddur spilaði Þórdís Steinþórsdóttir nemandi í 5. S á klarinett við píanóundirleik Franks Herlufsen. Petrína Baldursdóttir deildarstjóri ávarpaði gesti og þakkaði nemendum fyrir gott samstarf í vetur. Þá rifjaði hún upp helstu viðburði vetrarins og fékk síðan Guðbjörgu Sveinsdóttur aðstoðarskólastjóra til að veita viðurkenningar. Að þessu sinni voru það þrjár stúlkur úr 7. JR sem voru með bestan námsárangur en það voru þær Elínborg Adda Eiríksdóttir, Sigurbjörg Eiríksdóttir og Vigdís María Þórhallsdóttir.
Viðurkenningu fyrir hjálpsemi, jákvæðni og dugnað fékk Jóhannes Hilmar Gíslason í 8.U. Elsa Katrín Eiríksdóttir í 10. F, formaður nemendaráðs sagði frá helstu viðburðum á vegum nemendaráðsins í vetur. Að lokum kvaddi Halldóra Magnúsdóttir nemendur og sleit skólanum að þessu sinni. Sagðist hún hlakka til að sjá alla hressa og káta í haust.
Efsta mynd: Elínborg Adda Eiríksdóttir, Sigurbjörg Eiríksdóttir og Vigdís María Þórhallsdóttir í 7. JR fengu viðurkenningu fyrir besta námsárangurinn í 7.-8. bekk. Þórunn Svava Róberstdóttir var staðgengill dóttur sinnar sem komst ekki á skólaslitin. Guðbjörg Sveinsdóttir aðstoðarskólastjóri afhenti þeim bókagjafir.
Þórdís Steinþórsdóttir lék á klarinett.
Petrína Baldursdóttir deildarstjóri þakkaði fyrir veturinn.
Jóhannes Hilmar Gíslason í 8. U tók við viðurkenningu frá Guðbjörgu Sveinsdóttur aðstoðarskólastjóra.
Elsa Katrín Eiríksdóttir í 10. F, formaður nemendaráðsins fór yfir helstu viðburði vetrarins.