Jónsmessuganga Bláa Lónsins og Grindavíkurbæjar verður haldin laugardaginn 21. júní. Gangan hefst kl. 20.30 og lagt verður af stað frá Sundlaug Grindavíkur. Gengið verður upp á fjallið Þorbjörn þar sem varðeldur verður tendraður. Áætlað er að ferðin taki um tvær og hálfa klukkustund.
Tónlistarmennirnir Hreimur og Vignir munu sjá um söng og gítarspil á fjallinu. Dagskráin endar í Bláa Lóninu þar sem þátttakendur geta notið Jónsmessunæturinnar í töfrandi umhverfi Bláa Lónsins.
Bláa Lónið verður opið til miðnættis þetta kvöld. Enginn þátttökukostnaður er í gönguna og eru þátttakendur á eigin ábyrgð. Þeim þátttakendum sem vilja njóta Blue Lagoon að göngu lokinni býðst aðgangur á sérverði, eða 3.200 krónur.
Sætaferðir verða með Kynnisferðum frá BSÍ kl. 19.30 og SBK frá Reykjanesbæ kl. 20.00. Einnig verður boðið upp á sætaferðir frá Bláa Lóninu til Grindavíkur, Reykjanesbæjar kl. 01.00 og Reykjavíkur kl. 00.30. Sætaferð frá Reykjanesbæ kostar 1.500 kr. og sætaferð frá BSÍ 3.600 kr. Verðin miðast við ferðir báðar leiðir.
Hér má sjá kynningarmyndband um Jónsmessugönguna: