Sjöttu bekkirnir fóru í frábæra vorferð í nágrenni Grindavíkur. Reynt var að sameina fræðslu með skemmtun. Fræddust nemendur um innsiglinguna í Grindavík og fleira. Þá var Neshringurinn ekinn og fengu nemendur meðal annars að skoða rústir af gömlum húsum, skipsflökum og bryggju.
Selatangar voru einnig skoðaðir og fóru nemendur í keppni um hver gæti fundið steina úr fjörunni sem líktust mest draugnum Tanga-Tómasi. Að lokum var komið við á Hraunsfjöru og allir skemmtu sér á ströndinni þar með busli og mikilli hamingju.