Það eru sennilega fáir viðburðir á Sjóaranum Síkáta sem eru jafn sjónrænir og Bryggjuballið. Þar sameinast hverfin fjögur hvert í sínum lit í glæsilegri skrúðgöngu og ungir sem aldnir Grindvíkingar skemmta sér saman við glæsileg skemmtiatriði og dunandi tónlist fram eftir kvöldi.
Að vanda verður ballið haldið á föstudegi, sem í ár er 30. maí. Klukkan 18:00 eru götugrill um allan bæ en klukkan 19:45 söfnumst við öll saman og ganga litskrúðugir Grindvíkingar fylktu liði niður að höfn þar sem hóparnir mætast klukkan átta. Eru skemmtiatriðin ekki af verri endanum þetta árið. Svona lítur dagskráin út:
Slysavarnardeildin Þórkatla verður með candy-floss og annað góðgæti til sölu á svæðinu.
Hér eru svo nokkrar myndir frá liðnum árum til að koma fólki í réttan gír:
-
-
-
-
-