Kvikan, auðlinda- og menningarhús okkar Grindvíkinga, hefur nú skipt yfir á sumartíma og er opin alla daga vikunnar frá 10:00-17:00. Starfsmaður Kvikunnar í sumar er Álfheiður Guðmundsdóttir og tekur hún vel á móti gestum í sumar.
Kvikan, sem opnaði árið 2002, er sérhannað sýningarhús og í dag er þar að finna þrjár áhugaverðar sýningar um auðlindir í Grindavík. Þær eru:
Þetta eru vandaðar og fróðlegar sýningar sem vakið hafa mikla athygli. Skemmtilegt námsefni fyrir skólahópa á öllum skólastigum um Saltfisksetrið og Jarðorkuna.
Nánari upplýsingar um sýningarnar er að finna á heimasíðu Kvikunnar.
Eftir að hafa séð sýningarnar er upplagt að fá sér kaffi og meðlæti. Þráðlaust net sem þarf að greiða aðgang að. Jafnframt eru minjagripir til sölu.
Opnunartímar:
Sumar (14. maí til 31. ágúst): 10.00-17.00 alla daga vikunnar
Vetur: Lau. og sun. 11.00-17.00 og samkv. samkomulagi aðra daga.
Aðgangseyrir:
1.200 kr. Hópar (10+) 1.000 kr.
Lífeyrisþegar og ungmenni 16-20 ára 600 kr.
Skólahópar 500 kr.
Yngri en 16 ára í fylgd fullorðinna ókeypis.
KVIKAN - Auðlinda- og menningarhús
Hafnargötu 12a, 240 Grindavík (Sjá á korti)
Sími: 420 1190 / 420 1100
kvikan@grindavik.is