Almennur félagsfundur Framsóknar sem á að vera á dagskrá í kvöld fellur niður í ljósi þess að á sama tíma fer fram viðureign KR og Grindavíkur í úrslitum Íslandsmótsins í körfu. Við hvetjum alla Grindvíkinga til þess að fjölmenna á leikinn og hvetja lið Grindavíkur til sigurs.
Næsti fundur verður því næsta laugardag en þá verður framhald á íbúaþingi. Síðasta laugardag var haldið íbúaþing og farið yfir málefni fyrir næstu kosningar og gekk fundurinn svo vel að ákveðið var að boða til framhalds-fundar næsta laugardag. Við hvetjum því íbúa Grindavíkur til að taka frá næsta laugardag kl. 10:00 - 13:00 og mæta á íbúaþing Framsóknar og hafa áhrif á málefnaskrá flokksins.