Vinnuskóli Grindavíkur verður starfandi í sumar fyrir ungmenni fædd 2000, 1999, 1998 og 1997. Sækja skal um rafrænt í ÍBÚAGÁTT á www.grindavik.is (sjá hér), umsóknarfrestur er til og með 30. apríl og þurfa FORRÁÐAMENN/FORELDRAR að skrá nemendur með því að skrá sig inn, annaðhvort með rafrænum skilríkjum eða Íslykli. Íslykil mál nálgast á www.islykill.is.
Líklegt er að vinnutími lengist eitthvað frá fyrri auglýsingu í fjölfar þess að bæjarstjórn samþykkti fjárauka í Vinnuskólann. Ungmennaráð mun útfæra það nánar í samvinnu við sviðsstjóra og verkstjóra og verður niðurstaðan auglýst í næstu viku.
Fyrirkomulag vinnuskólans verður sem hér segir:
14 ára, úr 8. bekk:
Tímabil: 10. júní - 4. júlí. Fjöldi daga: 15
Starfstími: Mánudaga til fimmtudaga kl. 08:30 - 12:00. Fjöldi vinnustunda 109 í samtals átta vikur.
Laun: Kr. 518,- á tímann með orlofi.
Helstu verkefni: Þrif, rakstur og gróður umhirða.
15 ára, úr 9. bekk:
Tímabil: 10.júní - 18. júlí: Fjöldi daga: 23
Starfstími: Í þrjár vikur: Mánudaga til fimmtudaga kl.08:30-12:00 og 13:00-15:00. Fjöldi vinnustunda 162 í samtals níu vikur.
Laun: Kr. 592,- á tímann með orlofi.
Helstu verkefni: Gróðursetning, áburðargjöf, þrif, sláttur, rakstur og gróðurumhirða í görðum ellilífeyrisþega.
16 ára, úr 10. bekk:
Tímabil: 10. júní - 15. ágúst. Fjöldi daga: 35
Starfstími: Mánudaga til fimmtudaga kl. 08:30-12:00 og 13:00-15:00. Fjöldi vinnustunda 222 í samtals níu vikur.
Laun: Kr. 740,- á tímann með orlofi.
Helstu verkefni: Sláttur,rakstur og létt viðhald á lóðum. Gróðursetning, áburðargjöf, hreinsun, málun og önnur tilfallandi verkefni.
17 ára, úr 1. bekk framhaldsskóla:
Tímabil: 3. júní - 16. ágúst. Fjöldi daga: 42
Starfstími: Mánudaga til fimmtudaga kl.08.30-12.00 og 13.00-15.00. Fjöldi vinnustunda 239 í samtals 10 vikur.
Laun: Kr. 1.292,- á tímann með orlofi.
Helstu verkefni: Sláttur,rakstur og létt viðhald á lóðum. Gróðursetning, áburðargjöf, hreinsun, málun og önnur tilfallandi verkefni.
Sérstakir kynningarfundir um starfsemi Vinnuskóla Grindavíkur verða haldnir í Grunnskóla Grindavíkur sem hér segir:
- Mánudaginn 2. júní kl. 14:00 fyrir nemendur fædda 2000 og 1999 (14 og 15 ára). Foreldrar/forráðamenn velkomnir með á fundinn.
- Mánudaginn 2. júní kl. 15:00 fyrir nemendur fædda 1998 og 1997 (16 og 17 ára).
Á fundunum mun Þorgerður Guðmundsdóttir launafulltrúi fara yfir laun- og launakjör ásamt því að fara yfir helstu upplýsingar sem koma fram á launaseðli.
Litið er svo á að ef ungmenni mætir ekki á fundinn eða tilkynnir ekki forföll muni hann ekki þiggja vinnu við
Vinnuskólann.
ATH. Nemendur fæddir 1995 og 1996 þurfa að skila inn skattkorti til launafulltrúa Grindavíkurbæjar.
Verkstjóri vinnuskólans er Kristján Bjarnason umsjónarmaður grænna og opinna svæða.
Allar nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri- frístunda- og menningarsviðs. Netfang:thorsteinng@grindavik.is