Bæjarráð Grindavíkur hefur lagt til við bæjarstjórn að erindi Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar um styrk til kaupa á viðbragðstjaldi til að nota við hópslysa- og almannavarnaratvik verði samþykkt. Jafnframt leggur bæjarráð til að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2014 að fjárhæð 1.767.000 kr. vegna málsins.
Mynd: Víkurfréttir.