1349. fundur Bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 22. apríl 2014 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Bryndís Gunnlaugsdóttir Holm varaformaður, Marta Sigurðardóttir aðalmaður, Dagbjartur Willardsson varamaður, Guðmundur L. Pálsson áheyrnarfulltrúi, Róbert Ragnarsson bæjarstjóri og Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerð ritaði: Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
1. 1209054 - Endurnýjun gatnalýsingar í Grindavík
Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs kom á fundinn og gerði grein fyrir könnun málsins í kjölfar bókunar bæjarstjórnar 25. mars. Minnisblað lagt fram þar sem fram kemur að þrengingar voru meiri en hönnunargögn gerðu ráð fyrir.
Bæjarráð samþykkir að gatnamót Heiðarhrauns við Leynisbraut og Hraunbraut verði 6,4 metrar að breidd eða að hámarki í sömu breidd og akstursleið er í dag, í stað 6,2 metra samkvæmt hönnun.
2. 1404042 - Áætlun til þriggja ára um refaveiðar - drög til umsagnar.
Umhverfisstofnun óskar eftir umsögn um drög að áætlun til þriggja ára um refaveiðar.
Vísar til umsagnar skipulags- og umhverfisnefndar.
3. 1404031 - Fasteignagjöld vegna gróðurhúss Orf Líftækni hf.
Athugasemdir ORF líftækni ehf. við álagningu fasteignagjalda á árinu 2014 lagðar fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við forsvarsmenn ORF líftækni ehf.
4. 1404043 - Ósk um styrk til kaupa á almannavarnabúnaði
Ósk Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar um styrk til kaupa á viðbragðstjaldi til að nota við hópslysa- og almannavarnaratvik.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt og jafnframt að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2014 að fjárhæð 1.767.000 kr.
5. 1404032 - Samstarf vegna sumarumhirðu Kirkjugarðsins að Stað
Sóknarnefnd Grindavíkurkirkju óskar eftir samstarfi við Grindavíkurbæ varðandi umhirðu kirkjugarðsins að Stað.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að útfæra tillöguna nánar í samráði við sóknarnefnd og Vinnuskóla Grindavíkur og leggja tillögu fyrir bæjarráð.
6. 1203058 - Sóknaráætlanir landshluta.
Lokaskýrslur vegna Sóknaráætlunar fyrir Suðurnes lagðar fram til upplýsingar.
7. 1403142 - Samstæðuspil fyrir börn sem eru að byrja í grunnskóla.
Umsögn fræðslunefndar lögð fram. Nefndin telur ekki rétt að afgreiða einstakar umsóknir um námsgagnagerð án þess að ákveðinn ferill hafi verið markaður fyrir slíkar umsóknir hjá sveitarfélaginu. Fræðslunefnd bendir umsækjanda á sjóði sem styrkja námsgagnagerð á landsvísu.
Bæjarráð tekur undir umsögn fræðslunefndar og hafnar því að veita styrk til verkefnisins. Sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs er falið að leiðbeina umsækjanda um sjóði sem styrkja námsgagnagerð á landsvísu.
8. 1404025 - Boltagámur við knattspyrnuvöll
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2014 að fjárhæð 225.000 kr. til að leigja gám í stað boltaskúrs við knattspyrnuvöllinn sem eyðilagðist í bruna í vetur.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt og fjárhæðin komi til lækkunar á handbæru fé.
9. 1404048 - Skipulagsbreytingar HSS á hjúkrunarheimilinu í Víðihlíð
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi sínum og sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs með framkvæmdastjórn HSS vegna skipulagsbreytinga í Víðihlíð.
Bæjarráð vekur athygli á því að HSS áætlar að auka við sjúkraþjálfun og virkniúrræði í Víðihlíð og áréttar vilja sinn til að taka yfir rekstur hjúkrunarheimilisins og heimahjúkrunar í Grindavík. Bæjarráð bindur vonir við að viðræður hefjist að nýju næsta haust eins og ráðherra hefur gefið vilyrði fyrir.
10. 1311065 - Ársuppgjör 2013, Grindavíkurbær og stofnanir
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir tillögu að ársreikningi Grindavíkurbæjar og stofnana hans árið 2013.
Bæjarráð samþykkir ársreikninginn og vísar honum til endurskoðunar og afgreiðslu bæjarstjórnar í samræmi við 4. mgr. 61. gr. laga nr. 138/2011.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:55.