KR verður með forsölu fyrir leik 1 á í hádeginu í dag, mánudaginn 21. apríl, í DHL-höllinni á milli 12-13. Fyrsta rimma liðanna um Íslandsmeistaratitillinn í körfubolta karla hefst svo kl. 19:15. Forsvarsmenn liðanna eru sammála um að opna svo fyrir sölu kl. 17:00 á leikdegi, sama hvort leikið er í DHL-höllinni eða í Röstinni. Svo nema annað verði ákveðið, þá verður engin bein forsala á okkar heimaleiki en sala hefjist kl. 17:00 í Salthúsinu. Kannski breytist þetta og verður þá betur auglýst.
Stuðningsfólk liðanna er hvatt til að mæta tímalega, fá sér burger og drykk, anda að sér spennunni og "mingla" með andstæðingnum fyrir leik. Öskra svo úr sér lungun þegar í stúkuna er komið!
Áfram Grindavík!