Hringdu og Körfuknattleiksdeild Grindavíkur bjóđa upp á hamborgara á Salthúsinu!

  • Körfubolti
  • 16. apríl 2014

Hringdu ehf. og körfuknattleiksdeild UMFG sem gengu í samstarf á dögunum, munu bjóða stuðningsmönnum Grindavíkur upp á ÓKEYPIS hamborgara á Salthúsinu fyrir stór-oddaleikinn á móti Njarðvík á morgun, fimmtudag. Veislan hefst kl. 17:00 og mun Láki á Salthúsinu ásamt sínu frábæra starfsfólki, steikja hamborgara á meðan birgðir endast!

Forsala á þennan stórleik hefst kl. 20:00 í kvöld hjá Ásu (Glæsivellir 9, sími 894 8743) og verður svo framhaldið á morgun en frá og með kl. 17:00 verður Ása mætt í hamborgaraveisluna með forsöluna. 

Það má algerlega búast við að stútfullt verði út úr dyrum á þennan stórleik og því gildir að tryggja sér miða sem fyrst.
Áfram Grindavík.


Körfuknattleiksdeild Grindarvíkur og fjarskiptafyrirtækið Hringdu ehf. hefja samstarf.

Ljósnet Hringdu er í boði fyrir flest öll heimili í Grindavík. Af því tilefni hefur Hringdu ákveðið að styrkja körfuknattleiksdeild UMFG um 2.500 kr. á ári fyrir hvert heimili sem er með internettengingu hjá Hringdu.

Þetta er því kjörið tækifæri fyrir alla Grindvíkinga til þess að kaupa háhraða internetþjónustu á frábærum kjörum hjá Hringdu og styrkja félagið um leið.

JátvarðurJökull Ingvarsson framkvæmdastjóri Hringdu og Ásgerður Hulda Karlsdóttir gjaldkeri körfuknattleikdseildar UMFG skrifuðu undir samstarfsamning fyrir síðasta heimaleik Grindavíkur gegn Njarðvík í 4. liða úrslitum Dominosdeildarinnar. Að sjálfsögðu var samstarfinu fagnað með fræknum sigri Grindavíkur í þriðja leik liðanna.

Jón Gauti framkvæmdarstjóri körfuknattleiksdeildar UMFG sagði eftir undirritunina: „Við hjá UMFG fögnum þessu samstarfi við Hringdu. Ef að bæjarbúar kjósa að taka þátt í þessu með okkur, getur upphæðin sem greidd verður á fyrsta heimaleik næsta tímabils haft umtalsverða fjárhagslega þýðingu fyrir körfuknattleiksdeildina. Þarna er möguleiki á því að næla sér í háhraða internet á lægra veðri og styrkja félagið um leið"

Játvarður Jökull framkvæmdastjóri Hringdu sagði: „Við hjá Hringdu erum spennt fyrir því að styrkja þetta öfluga starf sem karfan í Grindavík hefur verið að vinna að á undanförnum árum og vonum að þetta geti styrkt frekar stöðu UMFG í körfunni."

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál