Í tilefni 40 ára kaupstaðarafmælis Grindavíkurbæjar var sérstakur hátíðarfundur í bæjarstjórn Grindavíkur síðasta fimmtudag. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands var á meðal gesta á fundinum. Þá sat ungmennaráð Grindavíkur einnig fundinn.
Tvö mál voru á dagskrá fundarins. Annars vegar lagði ungmennaráð fram þrjár tillögur fyrir bæjarstjórnina um málefni sem ungmennaráðinu eru hugleikin. Í fyrsta lagi að setja upp skólahreystibraut við grunnskólann, í öðru lagi að bæta í vinnu við Vinnuskólann í sumar, sérstaklega fyrir 8. bekk og í þriðja lagi að búið verði til sérstakt Grindavíkurviðburðarapp.
Bæjarstjórn samþykkti að ungmennaráðinu verði sérmerkt fjármagn á fjárhagsáætlun áranna 2015 til 2016 til ráðstöfunar fyrir opin svæði og leiktæki. Jafnframt samþykkti bæjarstjórn að auka fjárframlag til Vinnuskólans um 10% í sumar og þá var samþykkt að ungmennaráð útfæri appið nánar.
Þá samþykkti bæjarstjórn heiðursviðurkenningar til sex Grindvíkinga í tilefni 40 ára kaupstaðarafmælisins:
Lárus Guðmundsson formaður ungmennaráðs flytur tillögur ráðsins á bæjarstjórnarfundinum.
Fulltrúar ungmennaráðs ásamt forseta Íslands. Nökkvi, Nökkvi, Karen Óla, Ólafur Ragnar forseti Íslands, Ólafur og Lárus. Þrjá fulltrúa ungmennaráðs vantaði á myndina en þeir voru á ungmennaráðstefnu á Ísafirði.
Nökkvi Harðarson varaformaður ungmennaráðs flytur eina af tillögum ráðsins á fundinum.
Lovísa og Birna voru glæsilegar með forsetann á milli sín.
Gestir á hátíðarfundi bæjarstjórnar.
Róbert Ragnarsson bæjarstjóri og Ólafur Ragnar Grímsson forseti.